Fundargerð aðalfundar Fjölnis 2. maí 2012
07. May. 2012 03:25
Aðalstjórn Fjölnis
Fundargerð
Dagsetning: 2. maí 2012 kl. 20:00
Staður: Dalhús
Fundarstjóri: Birgir Gunnlaugsson
Ritari: Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir
1. Formaður setur fundinn
Bíður fundarmenn velkomna og setur fundinn (12 fundarmenn, auk stjórnar og framkvæmdastjóra)
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
Birgir Gunnlaugsson kosinn fundarstjóri.
Fundarstjóri gerir að tillögu að Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir sé fundarritari og er það samþykkt.
Fundarstjóri gengur úr skugga um að fundurinn sé löglegur, þ.e. að rétt sé til hans boðað.
Fundarstjóri fer yfir dagskrá fundarins.
3. Skýrsla stjórnar
Formaður stilkar á stóru um skýrslu stjórnar. Árið 2011 svipað undanförnum árum, Fjölnir stærsta félagið í Reykjavík þegar horft er á iðkendafjölda. Félagið hefur skilgreint sig sem hverfafélagið í Grafarvogi og vill hvetja Grafarvogsbúa að vera virkir þátttakendur í starfi félagsins.
Starfsemin hefur gengið vel eins og lesa má um í skýrslum stjórnarmanna deildanna sem liggja í ársskýrslu félagsins.
Tvennt fjallar formaður sérstaklega um. Í fyrsta lagi fjármál, þriðja árið í röð er félagið rekið með taprekstri. Óviðunandi til lengdar en að baki því liggja ýmsar skýringar, þær tvær helstar er að annars vegar er erfitt að reka afreksdeildir, því betur sem gengur þeim mun erfiðara verður að reka deildirnar fjárhagslega. Dæmi um körfuknattleiksdeildina er að við vorum með úrvalsdeildarlið bæði í kvenna og karlaflokki sem kosta mikið í rekstri, nefnir dæmi um hækkun dómarakostnaðar. Í öðru lagi er það niðurskurður opinbers framlags til íþróttafélaga og þar eru Fjölnismenn ekki einir á báti. Í kjölfar hrunsins var brugðið á það ráð að lækka framlög borgarinnar til íþróttafélaga. Ekki hafa komið neinar bætur vegna niðurskurðar fjárframlaga á sama tíma og þjónustan félaganna eykst. Fjölnir boðaði til fundar með öðrum fjölgreinafélögum í Reykjavík sem reyndust öll eiga við sama vanda að stríða. Í kjölfar þessa hefur náðst samningur við borgina um að bæta hluta þess skerta framlags sem félögin hafa þurft þola. Með rökum má segja að tap félagsins á nýliðnu ári megi rekja til niðurskurðar á fjárframlögum – þetta mun fást bætt a.m.k. að helmingi. Einnig mun fara fram úttekt á rekstrargrundvelli íþróttafélaganna.
Aðstöðumál, búið að vera í mörg ár rætt um aðstöðumál inniboltadeildanna hjá Fjölni. Eina félagið í Reykjavík sem hefur verið að halda úti meistaraflokkum í bæði handknattleiks- og körfuknattleiksdeild í einu fullbúnu íþróttahúsi. Hægt að benda á að þetta er í fullkomnu ósamræmi við önnur félög í Reykjavík. Ennfremur aðstöðuleysi fimleikadeildar. Ekkert hefur gerst enn sem komið er, en horfa verður á það að ekkert hefur verið byggt á vegum borgarinnar sl. 4-5 ár. Við höldum í vonina að hægt verði að tilkynna um niðurstöðu í þessu máli mjög fljótlega, hvort sem er með einhverri bráðabirgðalausn eða með framtíðarlausn í huga.
Formaður þakkar styrktaraðilum félagsins sérstaklega sem hafa staðið með okkur í gegnum þrengingarnar í þjóðfélaginu.
Ítrekar að við þurfum frekari aðstoð frá íbúum hverfisins.
Þakkar starfsmönnum Fjölnis fyrir sín störf. Ennfremur þeim sem stunda þjálfun og aðstoða við þjálfun hjá félaginu. Á launaskrá hjá félaginu eru vel á annað hundrað manns. Formaður vill sérstaklega þakka sjálfboðaliðum félagsins fyrir þeirra störf.
4. Reikningar félagsins
Hjörtur Þorgilsson framkvæmdastjóri fer yfir reikninga félagsins.
Niðurstaða ársins er tap af rekstri upp á tæpar 10 milljónir. Reikningurinn ber vott um það að verið var að breyta bókun hjá félaginu. Í dag koma inn allar tölur varðandi yngriflokkastarfi s.s. fjáraflanir foreldrafélaga o.þ.h. og er það meginskýringin á veltuaukningu. Ennfremur hefur bókun verið breytt á nokkrum liðum sem gerir það að verkum að það er talsverður munur á milli ára.
Tekið var við rekstri á íþróttamannvirkjunum í Dalhúsum í byrjun ársins og fylgdu því bæði tekjur og gjöld.
Vegna uppsafnaðs taps hefur félagið verið að keyra á miklum yfirdrætti hjá bankanum sem gerir það að verkum að mikill fjármagnskostnaður hefur verið á árinu 2011. Heildartap félagsins var tæpar 12,6 milljónir.
Framkvæmdastjóri fer í gegnum efnahagsreikning félagsins og sjóðsstreymi.
Fer yfir yfirlit um rekstur einstakra deilda.
5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga félagsins
Enginn kvað sér hljóðs um skýrslu stjórnar eða reikninga félagsins.
Skýrsla stjórnar samþykkt samhljóða.
Reikningar félagsins samþykktir samhljóða.
6. Ræður boðsgesta
Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ
i. Flytur kveðju frá framkvæmdarstjórn ÍSÍ og þakkar fyrir góðar kveðjur í tilefni afmælis.
ii. Ólafur þakkar vandaða skýrslu og vandaða framsetningu reikninga. Það er vissulega tap en það liggja fyrir skýringar á því. Reikningur unnin af fagaðilum og er vel fram settur.
iii. Tapið ekki gríðarlega stórt hlutfall af veltu og enn gott eigið fé. Þetta er í raun uppsafnað tap samfélagsins við félagið, því í gegnum niðurskurð hefur félagið haldið sínu starfi áfram.
iv. Fjölnir getur talist eitt ríkasta félagið eða eitt af ríkari félögum landsins. Fjölnir er það félag sem er með flesta iðkendur í Reykjavík og þar með eitt af því stærsta á landinu. Ólafur vísar til ræðu formanns þar sem hann fjallaði um starfsemi félagsins og kveður gaman að heyra að búið er að skilgreina félagið og að menn eru vinna eftir ákveðnum markmiðum.
v. ÍSÍ hefur lagt mikla áherslu á fyrirmyndafélagskerfið og hefur undanfarið verið að vinna að því að draga sveitarfélögin að því borði. Þetta er mikið samfélagsmál, því hver unglingur sem bjargað verður frá vímuefnum o.þ.h. kostar samfélagið mun minna ef honum er haldið í íþróttum heldur en ef greiða þarf fyrir hann leiðist hann út í óreglu.
vi. Forseti nefnir að fjárframlög hafa verið skert mikið til sambandsins en á sama tíma eru lagðar meiri kröfur á samtökin s.s. varðandi fræðslumál v/eineltis. Fyrir dyrum stendur að skrá niður sjálfboðaliðastarfið í kringum félögin til að hægt sé að leggja fyrir stjórnvöld og fá þannig mælistiku á þá miklu vinnu sem unnin er í félögunum. Einnig er hægt að nota slíkt fyrir yngri sjálfboðaliða til að hægt sé að „verðlauna“ þá fyrir þátttöku/aðstoð.
vii. Afreksstarfið er ekki „inn“ í samfélaginu fyrr en kemur að því að medalíur koma heim af stórmótum.
viii. Ólafur kveður aðstöðumál félagsins vera áhyggjuefni.
ix. Ólafur sagði gaman að sjá hvað starfsemi félagsins er fjölbreytt og nefnir að hann hafi verið að koma af ársþingi keilusambandsins, þar var eitt aðalumfjöllunarefnið að kominn væri grundvöllur fyrir nýja deild innan Fjölnis með tilkomu keiluhallarinnar í Egilshöll.
Helgi Gunnarsson fjármálastjóri UMFÍ
i. Lýsir ánægju sinni með að vera kominn á aðalfund Fjölnis.
ii. Flytur kveðju frá stjórn og starfsfólki UMFÍ.
iii. Þakkar það góða starf sem unnið hefur verið hjá félaginu á undanförnum árum.
iv. Nefnir hvað sjálfboðastarfið er mikilvægt því til að fólk geti iðkað íþróttir verður að vera rammi sem byggir á sjálfboðaliðum. Ekki alls staðar sem er svona gott utanumhald eins og hjá Fjölni. Reikningar skilmerkilega fram settir.
v. Kynnir tímaritið Skinfaxa en það hefur komið út í rúm 100 ár.
vi. Nefnir landsmótin, Landsmót 50+ haldið í Mosfellsbæ. Unglingalandsmótið verður haldið á Selfossi á þessu ári og vonandi sem flestir frá Fjölni komi og taki þátt. Stóra landsmótið á Selfossi 2013. Um að gera að fara að æfa pönnukökubaksturinn o.þ.h.
7. Viðurkenningar
Formaður þakkar fyrir hlý orð í garð félagsins. Það er viðtekin venja að veita þeim sem hafa lagt mikið á sig fyrir hönd félagsins og í ár verða veitt 2 gullmerki félagsins:
15. gullmerki félagsins fær Erla Gunnarsdóttir.
16. gullmerki félagsins fær Kári Arnórsson. 
8. Kjör formanns
Jón Karl Ólafsson einn í kjöri og er því rétt kjörinn formaður Fjölnis.
9. Kjör stjórnarmanna
Allir núverandi stjórnarmenn gefa kost á sér og ekki bárust fleiri framboð.
i. Ásgeir Heimir Guðmundsson
ii. Guðmundur L. Gunnarsson
iii. Gunnlaugur Birgir Gunnlaugsson
iv. Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir
v. Jón Oddur Davíðsson
vi. Örn Pálsson
Ekki kom fram tillaga um afbrigði og eru þessir aðilar því rétt kjörnir stjórnarmenn.
10. Kjör skoðunarmanna reikninga
Ágúst Heimir Ólafsson löggiltur endurskoðandi hefur verið skoðunarmaður félagsins og gefur kost á sér áfram. Ekki bárust fleiri framboð og telst hann því rétt kjörinn.
11. Lagabreytingar
Stjórn leggur fram tillögu að lagabreytingum á 18. gr. laga félagsins.
Greinin hljóðaði svo:
i. “Heimilt er að starfrækja meistaraflokka innan félagsins að uppfylltum skilyrðum laga þessara, en einungis utan reksturs hefðbundins barna- og unglingastarfs (í samræmi við kröfur ÍSÍ um aðskilnað þessara rekstrareininga). Rekstur meistaraflokka skal vera bókhalds- og félagslega sjálfstæður og með sér kennitölu.
ii. Deildarstjórn getur ein óskað eftir því við stjórn að meistaraflokkar sé starfræktir í þeirri íþróttagrein sem deildina varðar. Stjórn metur rekstrar- og félagslegan grundvöll fyrir slíkum rekstri og veitir eða hafnar heimild til reksturs. Veiti stjórn leyfi til rekstursins skal stjórn félagsins skipa stjórn meistaraflokks samkvæmt tilnefningu deildarstjórnar og ber stjórn mfl ábyrgð á viðkomandi rekstri gagnvart stjórn.
iii. Uppgjör vegna reksturs meistaraflokka skal kynnt sérstaklega á aðalfundi félagsins ár hvert en vera hluti af rekstrar- og efnahagsreikningi félagsins. Stjórn meistaraflokks skal leggja fram rekstrar- og tekjuáætlun fyrir hvert keppnistímabil fyrir sig til stjórnar til samþykktar og er hún bindandi fyrir stjórn meistaraflokksins. Stjórn meistaraflokks er óheimilt að skuldbinda félagið með nokkrum hætti nema með samþykki framkvæmdastjóra.”
Breytingatillaga hljóðar svo:
i. “Heimilt er að starfrækja meistaraflokka innan félagsins að uppfylltum skilyrðum laga þessara, en einungis utan reksturs hefðbundins barna- og unglingastarfs (í samræmi við kröfur ÍSÍ um aðskilnað þessara rekstrareininga). Rekstur meistaraflokka skal vera bókhalds- og félagslega sjálfstæður og með sér kennitölu.
ii. Deildarstjórn getur ein óskað eftir því við stjórn félagsins að meistaraflokkar sé starfræktir í þeirri íþróttagrein sem deildina varðar. Stjórn félagsins metur rekstrar- og félagslegan grundvöll fyrir slíkum rekstri og veitir eða hafnar heimild til reksturs. Veiti stjórn félagsins leyfi til rekstursins skal hún skipa stjórn meistaraflokks samkvæmt tilnefningu deildarstjórnar og ber stjórn meistaraflokks ábyrgð á viðkomandi rekstri gagnvart stjórn félagsins. Stjórn félagsins hefur heimild til að setja reglur um leikmannasamninga og hefur jafnframt eftirlit með framkvæmd þeirra.
iii. Uppgjör vegna reksturs meistaraflokka skal kynnt sérstaklega á aðalfundi félagsins ár hvert en vera hluti af rekstrar- og efnahagsreikningi félagsins. Stjórn meistaraflokks skal leggja fram rekstrar- og tekjuáætlun fyrir hvert keppnistímabil fyrir sig til stjórnar félagsins til samþykktar og er hún bindandi fyrir stjórn meistaraflokksins. Stjórn meistaraflokks er óheimilt að skuldbinda félagið með nokkrum hætti nema með samþykki framkvæmdastjóra.”
Breytingatillaga þessi miðar annars vegar að því að skýra hvenær í greininni er átt við stjórn deildar og hvenær stjórn félagsins. Hins vegar er bætt inn ákvæði varðandi leikmannasamninga og skapast það af vandræðum sem félagið hefur lent í á undanförnum árum, ákveðið var að hafa slíkt sem heimildarákvæði.
Enginn kvað sér hljóðs um lagabreytingartillöguna og var hún samþykkt samhljóða.
12. Önnur mál
Fyrir liggja tvær ályktanir:
Ályktun I
1. Aðalfundur Ungmennafélagsins Fjölnis, haldinn í íþróttmiðstöð félagsins í Dalhúsum 2. maí 2012, skorar á Íþrótta- og ólympíusamband Íslands að efna til viðræðna við stjórnvöld um endurgreiðslur launatengdra gjalda til íþróttafélaga.
Greinargerð:
Launakostnaður íþróttafélaga hefur á undanförnum árum hækkað mikið samfara auknum skuldbindingum í formi þjónustu sem félögunum er ætlað að veita. Á sama tíma hefur þrengst um fjárhagsstyrki til félaganna frá einkaaðilum og þjónustugjöld frá bæjar- og sveitafélögum hafa verið skert. Vegna þessa eru fjölmörg íþróttafélög komin í afar erfiða stöðu um rekstur. Tillögunni er ætlað að bæta þar úr.
ii. Ólafur fagnar ályktuninni en bendir á að réttnefni er Íþrótta- og ólympíusamband Íslands. Ályktun I er samþykkt samhljóða.
Ályktun II
- Aðalfundur Ungmennafélagsins Fjölnis, haldinn í íþróttamiðstöð félagsins í Dalhúsum 2. maí 2012, skorar á Íþrótta- og ólympíusamband Íslands og samtök íþróttafréttamanna að finna breiðari grundvöll fyrir kjöri á Íþróttamanni ársins. Með því væri hægt að auka líkurnar á að valið endurspegli skoðarnir íþróttafréttamanna ásamt íþróttahreyfingarinnar í heild sinni.
Greinargerð:
Sérsambönd innan ÍSÍ kjósa almennt bæði íþróttamann og íþróttakonu sem skarað hafa fram úr á sínu sviði á hverju ári, slíkt hefur ekki verið gert fyrir ÍSÍ í heild sinni. Það hafa hins vegar samtök íþróttafréttamanna gert með aðkomu ÍSÍ sem gerir það að verkum að almenningur telur að um sé að ræða íþróttamann ársins hjá ÍSÍ. Nokkur styrr hefur staðið um val á íþróttamanni ársins undanfarin ár og vill því Ungmennafélagið Fjölnir leggja það til að ÍSÍ og samtök íþróttafréttamanna endurskoði það ferli sem viðhaft er við val á íþróttamanni ársins.
Ályktun II samþykkt samhljóða.
Fundarstjóri þakkar fyrir fundarsetu. Formaður félagsins þakkar þeim sem mætt á fundinn. Þakkar stjórnarmönnum samstarfið.
13. Fundarslit
Formaður slítur fundi.
Fundi slitið kl. 21:25