Um afreksskólann

Afreksskóli Fjölnis var stofnaður 19.desember 2010 í Dalhúsum.  Skólinn er starfræktur þvert á allar deildir félagsins og um það bil 30 krakkar eru skráðir í skólann til að byrja með.

Markmið Afreksskóla Fjölnis er að skapa Topp afreksumhverfi, aðstöðu og umgjörð fyrir efnilegasta íþróttafólk Fjölnis í þeirri von að úr verði afreksmenn og góðar fyrirmyndir.  Einnig er mikilvægt að skerpa á gildum félagsins og skapa jákvætt umhverfi í kringum Ungmennafélagið Fjölni.

Inntökuskilyrði fyrir því að komast að í afreksskólanum í hópíþróttagreinum er að hafa tekið reglulega þátt í úrtaksæfingum landsliða síns árgangs en í einstaklingsgreinum að hafa unnið til verðlauna á meistaramóti.

Skólastjóri Afreksskólans er Ásmundur Arnarsson sem er sjúkraþjálfari og jafnframt þjálfari mfl karla í knattspyrnu en helstu fagaðilar sem koma að Afreksskólanum eru Viðar Halldórsson félagsfræðingur, Einar Einarsson sjúkraþjálfari og Ólafur Sæmundsson næringarfræðingur.  Yfirþjálfarar deilda gegna mikilvægu hlutverki til að tengja einstaka deildir við Afreksskólann og auk þess er fjöldi gestakennara og fyrirlesara sem koma að skólanum.

Á bak við stjórnendur skólans er fagráð sem hjálpar til við úrlausnir á ýmsum málum sem upp kunna að koma í afreksskólanum.  Fagráð Afreksskóla Fjölnis samanstendur af Málfríði Sigurhansdóttur íþrótta- og félagsmálastjóra Fjölnis, Jakobi Gunnarssyni fyrrum landsliðsmanni í handbolta og Krístínu Hákonardóttur fyrrum sundafrekskonu.

Starfsemi Afreksskóla Fjölnis felst fyrst og fremst í fræðslu 6-8x á ári og ýmsum mælingum.  Þá er einnig stefnan að brjóta hlutina upp öðru hvoru með t.d. hópferð ofl.

100% mætingaskylda erí Afreksskóla Fjölnis og tekur hann framyfir æfingar en reynt verður að hafa ekki Afreksskólann í gangi þegar keppnir eru hjá viðkomandi iðkendum. 

Gerður er samningur milli Félagsins, iðkenda og foreldra þeirra þar sem félagið kappkostar að skapa afreksumhverfi eins og best verður á kosið.  Iðkandinn skuldbindur sig til þess að sinna íþrótt sinni af metnaði og hugsa vel um líkama og sál.  Algjört bann er á notkun áfengis og tóbaks og iðkendur skila inn einkunnum úr skóla eftir vor og haustannir.  Foreldrar skuldbinda sig um leið til þess að fylgjast vel með börnum sínum og fylgja þeim hlutum eftir sem farið er yfir í afreksskólanum.  Auk þess skulu foreldrar vinna með félaginu að settu marki og koma með ábendingar ef þörf er á. 

Fra stofnfundi

Hópurinn sem mætti á stofnfund Afreksskóla Fjölnis 19.des 2010