Fimleikafatnaður
Fimleikadeild Fjölnis selur Fjölnisboli, keppnisboli og stuttbuxur á skrifstofu félagsins sem er opin alla virka daga frá kl. 9:00 - 16:00.
Fjölnisgallan (Team Spirit Micro Suit, blár) er hægt að kaupa hjá Jóa Útherja, Ármúla 36. Einnig er stefnt á að deildin taki við pöntunum frá iðkendum einu sinni á önn og reyni þá að ná fram hagstæðara verði með magninnkaupum. Gallinn er merktur á baki: FJÖLNIR fimleikadeild, á brjósti er Fjölnismerkið auk þess sem nafn iðkenda er bæði á buxum og peysu.