Hópar

Hópaskipting Fimleika

 

Krílahópar eru leikskólahópar með 3-4ra ára börnum þar sem foreldrar aðstoða börn sín við æfingar sem stjórnað er af þjálfurum okkar og aðstoðarþjálfurum. Krílahópar æfa einu sinni í viku í 50-60 mín í senn.

G-hópar eru grunnhópar / byrjendahópar stúlkna. Yngst eru 5 ára börn í G-hóp, en þau eru flest 5-8 ára að byrja. Iðkendur í G-hópum læra grunnæfingar í fimleikum, einnig er lögð áhersla á styrktaræfingar, líkamsstöður og að byggja upp, þrek og teygjur. G-hópar taka þátt í jólasprelli og vorsýningu.

F-hópar eru framhaldshópar stúlkna sem börn færast í eftir eitt ár í grunnhóp. Þar er áfram unnið með grunnæfingarnar auk þess sem við bætast æfingarnar sem eru í 6. þrepi Íslenska fimleikastigans. Iðkendur eru í F-hóp í 1-3 ár. Fyrir utan hefðbundna þjálfun taka framhaldshópar þátt í jólasprelli og vorsýningu.

Á-hópar eru keppnishópar stúlkna í 6.þrepi, sumir einungis innan félagsins en aðrir á millifélagamótum. Æfingar eru úr 6.þrepi og undirbúningur fyrir 5.þrep. Iðkendur eru í Á-hóp í 1-4 ár. Stúlkur í Á-hópum taka þátt í innanfélagsmóti Fjölnis, boðsmótum annara félaga, jólasprelli og vorsýningu.

K-hópar eru keppnishópar stúlkna í 5. Þrepi og efri þrepum, sumir á millifélagamótum og aðrir á FSÍ mótum. Hér er lögð áhersla á þær æfingar sem eru í hverju þrepi fyrir sig.

T-hópar eru Tromphópar. Þeir æfa eftir reglum hópfimleika. Þetta eru hópar í undirbúningi undir keppni í trompi og keppnishópar á mismunandi stigum. Æfingaval er í samræmi við reglur þrepanna.

S-hópar eru strákahópar, bæði grunnhópar og framhaldshópar.

Hópaskipting er alfarið í höndum yfirþjálfara í samráði við aðra þjálfara. Stöðupróf eru framkvæmd til að meta hvern og einn einstakling með það að markmiði að hann æfi í hóp sem hæfir hans getustigi.