Um deildina

Fimleikadeild Fjölnis var formlega stofnuð í maí árið 2002 en hafði þá verið starfrækt undir almenningsdeild Fjölnis frá því haustið 2001. Fyrstu árin fór starfsemin fram í Engjaskóla en í desember 2002 fékk deildin aðstöðu í 392 m². íþróttasal í kjallara Egilshallar. Í lok árs 2009 fékk deildin annan 470 m² sal í Egilshöllinni til umráða til viðbótar við þann eldri og keypt voru inn ný áhöld sem var mjög til bóta fyrir starfið.