Fimleikar eru frábær hreyfing fyrir börn á öllum aldri og það sem þau læra í fimleikum munu þau njóta góðs af alla æfi. Fimleikar eru frábærir fyrir jafnvægi, samhæfingu og styrk líkamans og hver vill ekki hafa þessa hluti í lagi.



Fimleikadeildin fer ört stækkandi og er boðið upp á þjálfun fyrir stelpur og stráka frá 5 ára aldri. Lögð er áhersla á að byggja upp byrjendur jafnt sem frahaldshópa og einnig að koma keppnishópunum okkar áfram bæði í áhaldafimleikum og trompfimleikum.