Knattspyrnuskóli Fjölnis fær gæðavottun KSÍ og UEFA

Fjölnir hefur starfrækt knattspyrnuskóla í sumar eftir nokkurt hlé.  Það eru þeir heiðursmenn Sigurður Þórir Þorsteinsson, þjálfari 2.fl Fjölnis og Lárus Grétarsson, þjálfari 3.fl og yfirþjálfari yngri flokka Fjölnis sem sjá um knattspyrnuskólann að þessu sinni.  Ásóknin hefur verið góð í skólann og mikið fjör hjá krökkunum.

Fulltrúar frá KSÍ komu í heimsókn og tóku út skólans og það er gaman að geta þess að gæði knattspyrnuskóla Fjölnis er með þeim hætti að hann stóðst kröfur frá KSÍ og UEFA og fær þar með "Gæðavottorð" undirritað af framkvæmdastjóra KSÍ og gildir til loka árs 2011.

Meðal þátta sem skoðaðir eru í gæðamatinu eru búnaður, aðstaða, öryggi barna, gæðastarf knattspyrnuskólans, menntun og fjölda starfsmanna og fleiri þætti.  nánar er hægt að skoða kröfurnar með því að smella HÉR.

     

Hér á myndunum sjást Lárus og Sigurður veita gæðavottorðinu viðtöku og á myndinni til hægri sést kátur hópur krakka á knattspyrnuskóla Fjölnis.  Smellið á myndirnar til að skoða þær stærri.