Miðvikudaginn 28.júlí kl. 20:00 koma Skagamenn í heimsókn á Fjölnisvöll. Skagamenn byrjuðu mótið langt undir væntingum en hafa heldur betur verið að rétta úr kútnum. Þeir hafa fengið til sín reynsluboltana Lárus Orra Sigurðsson og Stefán Þórðarson sem báðir eru margreyndir atvinnumenn og landsliðsmenn ásamt þvi að á móti okkur mun spila sinn fyrsta leik senter sem kom til þeirra frá varaliði Middlesbrough.
ÍA og Fjölnir hafa aðeins einu sinni áður verið í sömu deild á þessari öld en það var árið 2008 í efstu deild. Það ár vann Fjölnir báða leikina, 2-0 á heimavelli og 3-0 á skaganum. Leikur liðanna í vor uppá skaga fór hins vegar jafntefli 2-2 þar sem Fjölnir var manni færri stóran hluta leiksins.
Skagamenn eru taplausir í síðustu 5 leikjum og eru í dag 2 stigum á eftir okkur Fjölnismönnum. Þeir geta því komist upp fyrir okkur með sigri. Framundan er því sannkallaður 6 stiga leikur gegn stórskotaliði Skagamanna á miðvikudaginn. Nú veitir ekki af góðum stuðningi úr brekkunni.
Allir á völlinn
Áfram Fjölnir
Lárus Orri Sigurðsson mætir á Fjölnisvöll á miðvikudag sem leikmaður Skagamanna, en þegar Íslandsmótið hófst í vor var hann þjálfari Þórs á Akureyri.