Frábær árangur hjá okkar fólki í frjálsum á Vormóti ÍR

Í gærkvöldi, miðvikudaginn 9. júní fór Vormót ÍR fram á Laugardalsvellinum. Bjarni Malmquist sigraði í langstökki með 6,98 m. og er það góð byrjun á sumrinu hjá honum. Stefanía Hákonardóttir sigraði í 400 m. hlaupi á 59,97 sek. og Kolbeinn Þorbergsson kom óvænt og varð í 3. sæti í 100 m. hlaupi á ágætum tíma, þrátt fyrir mótvind og rigningu. Helga Guðný Elíasdóttir varð í 3. sæti í 3000 m. hlaupinu og Sigurður Lúðvík Stefánsson varð í 4. sæti í 100 m. hlaupinu. Val á landsliði Íslands fyrir Evrópubikarkeppni Landsliða stendur fyrir dyrum og verður spennandi að sjá hvaða fulltrúa við fáum þar.