Meistaramót Íslands 11-14 ára í frjálsum íþróttum fór fram um síðustu helgi í Kópavogi. Alls voru 12 keppendur frá Fjölni skráðir til leiks og náðist glæsilegur árangur hjá okkar keppendum. Valdimar Ingi Jónsson varð Íslandsmeistari í 800 m hlaupi á tímanum 2:30,88 mín í flokki 12 ára stráka og varð félagi hans Sigurjón Már Markússon í 3. sæti á tímanum 2:35,95 mín. Valdimar varð einnig í 2. sæti í 60 m hlaupi á tímanum 8,67 sek og Sigurjón í 3. sæti í langstökki þegar hann stökk 4,26 m. Þeir félagar urðu svo í 2. sæti í 4x100 m boðhlaupi ásamt Fjölnisstrákunum Magnúsi Þór Magnússyni og Daða Arnarsyni sem keppti upp fyrir sig um einn flokk. Daði hljóp svo 800 m beint eftir boðhlaupið og hafnaði í 3. sæti í flokki 11 ára stráka á flottum tíma 2:35,94 mín. Í flokki 12 ára stelpna náði Vilhelmína Þór Óskarsdóttir þeim jafnframt þeim glæsilega árangri að verða Íslandsmeistari í 800 m hlaupi á tímanum 2:43,60 mín, auk þess að verða í 3. sæti í 60 m hlaupi á tímanum 9,22 sek. Hreint út sagt glæsilegur árangur hjá okkar keppendum, bæði þeim sem unnu til verðalauna á þessu mót sem og annarra.
Öll úrslit frá mótinu er að fynna í mótaforriti FRI