Góður árangur okkar keppenda á MÍ í frjálsum um helgina. Íslandsmeistaratitill í 4 x 100 m. boðhlaupi karla.

  Kolbeinn Þorbergsson stórbætti sig og kom mest á óvart af Fjölniskeppendum um helgina, en hann varð 3. sæti í 100 m. hlaupi karla og í 2. sæti í 200 m. hlaupi og var einn af liðsmönnum boðhlaupssveitarinnar.

 Hann bætti sig  töluvert í  báðum greinum og er ljóst að hér er bráðefnilegur spretthlaupari á ferðinni.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

        Boðhlaupssveitina sem vann gullið í 4 x 100 m. boðhlaupi karla með nokkrum yfirburðum, skipuðu þeir Kolbeinn, Sigurður Lúðvík, Bjarni Malmquist og Sveinn Elías. Var það ánægjulegt að sjá hann á hlaupabrautinni aftur eftir nokkurt hlé.

Bjarni Malmquist varð í 2. sæti í þrístökki eftir spennandi keppni þar sem hann gerði fyrstu 5 stökkin ógild en náði síðan 2. sæti í síðasta stökkinu.
Hann varð í 3. sæti í langstökki og í 4. sæti í 200 m. hlaupinu. Sigurður Lúðvík varð í 4. sæti í 100 m. hlaupinu með bætingu og í 6. sæti í 200 m. hlaupinu
líka með bætingu. Þannig átti Fjölnir 3 í úrslitum 200 m. hlaupsins. Jósep Magnússon varð í 4. sæti í 5000 m. hlaupi og  Leifur Þorbergsson varð í 5. sæti í 800 m. hlaupi. 

 


Stefanía Hákonardóttir varð í 2. sæti í 800 m. hlaupi og 3. sæti í 400 m. hlaupi. Hún varð síðan 6. í 200 m. hlaupi. Helga Guðný Elíasdóttir keppti í 800 m. hlaupi
og varð í 3. sæti og í 1500 m. hlaupi og varð þar í 3. sæti líka. Júlíana Kristín Jónsdóttir varð í 3. sæti í stangarstökki kvenna og var nálægt því að fara yfir 2,82 m.
.


Að þessu sinni voru færri keppendur en oft áður en við áttum einungis 3 keppendur í kvennaflokki en því miður þá gátu margar þeirra ekki keppt vegna meiðsla.


Um næstu helgi fer síðan fram MÍ 16-22 ára og verður það mót haldið af FH á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði.

sjá nánar úrslit á http://mot.fri.is/cgi-bin/ibmot/urslitib1410D1.htm