Gunnar Steinn Jónsson og samherjar í Drott komust um helgina í úrslit sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik þegar þeir unnu Ystad, 34:27, í fimmta og síðasta undanúrslitaleik liðanna sem fram fór í Ystad.
Heimamenn voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15:13, eftir að hafa byrjað leikinn með látum og m.a. náð sex marka forystu snemma leik, 7:1. Leikur Ystad hrundi í síðari hálfleik og við það gengu leikmenn Drott, með Gunnar Stein í broddi fylkingar, á lagið og unnu sjö marka sigur. Gunnar Steinn var markahæstur hjá Drott með sjö mörk.
Drott, sem er frá Halmstad, mætir Sävehof í hreinum úrslitaleik í Malmö Arena á laugardaginn.
Gunnari Steini er hælt á hvert reipi fyrir framgöngu sína í leiknum í nokkrum sænskum fjölmiðlum en hann fór fyrir liðinu í vörn sem sókn ásamt Robert Bladh, markverði.
Þjálfari Drott, Ulf Sivertsson, segir að ævintýri Drott á keppnistímabilinu, sé að stærstum hluta Gunnari Steini að þakka. Fyrir keppnistímabilið áttu fáir von á að Drott myndi blanda sér af alvöru í baráttuna um sænska meistaratitilinn.
Gunnar Steinn gekk til liðs við Drott á síðasta sumri frá HK í Kópavogi. Hann framlengdi nýverið samning sinn við félagið til tveggja ára. En fyrir þann tíma sem Gunnar spilaði með HK spilaði hann með Fjölni.
Grein þessi er birt með leyfi mbl.is