Stuðningsmannaklúbbur Fjölnis

 
Jón Oddur með stuðmannabol Fjölnis...

Stuðningsmannaklúbbur Fjölnis

Stuðningsmannaklúbbur mfl. körfuknattleiksdeildar Fjölnis var settur á laggirnar árið 2004. Það var okkar fyrsta ár í  deild bestu liða landsins og þegar sem best gekk voru meðlimir orðnir um 30 talsins.

Ekki náðist að hrista hópinn saman en margir mættu vel á völlinn og þáðu kaffisopa og bakkelsi í leikhléi, enda veitti ekki af því margir af leikjunum urðu æsispennandi strax í fyrri hálfleik.

Framtíðarsýn stuðningsmannaklúbbssins er að þarna verði til samheldinn hópur sem hittist stöku sinnum og ræðir málin. Einnig væri upplagt að koma saman fyrir mikilvæga leiki og ráða ráðum sínum og fá jafnvel tækifæri til að ná á þjálfarann og komast að því hvernig hann ætli að leggja upp leikinn.
Eflaust fengi hann þá einhver góð ráð að launum því nóg er af þeim í hópnum.

Tillaga að reglum klúbbsins:

1. gr.
Félagsskapurinn gengur undir nafninu "Stuðmenn".

2. gr.
Stuðmenn lofa að reyna eftir fremsta megni að hvetja lið sitt með jákvæðum hætti en skipta sér lítt af dómgæslu og öðru slíku, að minsta kosti ekkert skítkast eða þessháttar.

3. gr.
Stuðmaður mætir í gulum bol á alla leiki.

4. gr.
Stuðmaður greiðir að lágmarki kr. 12.000 á ári í stuðningsframlag til körfuknattleiksdeildarinnar.
(Best er ef hægt er að draga af visakorti mánaðarlega)

5. gr.
Forsvarsmaður Stuðmanna er Jón Oddur Davíðsson, formaður kkd. Fjölnis.

Gerast má félagi í stuðningsmannaklúbbi Fjölnis með því að senda forsvarsmanni klúbbsins eftirfarandi upplýsingar á tölvupósti: (jod@hampidjan.is)

Nafn:
Heimilisfang:
Kennitala:
Heimasími:
Gsm:

Viðkomandi fær tölvupóst til baka með nánari upplýsingum um greiðslu og svo félagsskírteini í gamla góða póstinum.