Þá liggja fyrir úrslit í hópleik getrauna hjá Fjölni, vorið 2010.
Í efri deildinni léku til úrslita President gegn Perfect 13 en þssi lið unnu sitt hvorn riðilinn í 1. deildinni. Perfect 13 náði 10 réttum gegn 9 réttum hjá President.
Perfect 13 eru því Vorleiksmeistari getrauna hjá Fjölni 2010.
President var í 2. sæti og Gaupurnar urðu síðan í 3. sæti.
Í neðri deildinni léku ICESAVE gegn Everpool um efsta sætið og þar hafði ICESAVE betur. Voru með 10 leiki rétta, á móti 8 leikjum réttum hjá Everpool. Um 3. sætið léku Joe Kid gegn Fjölnisdrengjum. JK hafði betur með 9 réttum gegn7 og náði því 3. sæti í annari deild.
Við þökkum liðunum kærlega fyrir þátttökuna og mætum svo af krafti til leiks aftur í haust.
