Jafntefli við Skagamenn

Í vikunni spilað meistaraflokkur karla við ÍA á Fjölnisvelli. Lokatölur urðu 1-1 eftir að staðan í hálfleik hafi verið 1-0 okkar mönnum í vil. Það var Pétur Markan sem að skoraði mark okkar manna seint í fyrri hálfleik. Skagamenn jöfnuðu svo leikinn þegar að sjónvarpsmaðurinn Hjörtur Hjartarsson skoraði eftir klafs í teig okkar manna.

Á síðustu mínútu leiksins áttum við svo tvo skalla í slá í sömu sókninni en inn fór boltinn ekki og því var 1 stig niðurstaðan.

Næsti leikur okkar manna er gegn Þrótti næstkomandi fimmtudag á Valbjarnavelli í Laugardal