Meistaraflokkur kvenna: Tap í Eyjum

Meistaraflokkur kvenna spilaði í gær við ÍBV í Vestmannaeyjum í miklum rokleik. Lokatölur urðu 5-0 heimastúlkum í vil eftir að staðan í hálfleik hafi verið 1-0. Þess má geta að Fjölnisstelpan Edda María Birgisdóttir var meðal markaskorara ÍBV í leiknum

Ljóst var fyrir leikinn að um erfiðan leik væri að ræða en ÍBV liðið er gríðarlega sterkt og stefnir hratt upp í efstu deild.

Okkar stelpur hafa verið að standa sig mjög vel í sumar og eru í 3 sæti deildarinnar

Næsti leikur hjá stelpunum er á fimmtudaginn þegar að ÍR koma í heimsókn í Voginn