Skákæfingar
 

Skákæfingar Fjölnis

Fastar skákæfingar eru á hverjum laugardegi í Rimaskóla, kl. 11:00 - 12:30 og er gengið inn frá íþróttahúsinu. Aðstaða í Rimaskóla er mjög góð enda er skólinn byggður með það í huga að geta þjónað sem hverfamiðstöð. Allir velkomnir.


 
Fréttir skákdeildar
07. janúar 2010
| Fréttir skákdeildar
| ms

Styrkur frá Velferðarráði Rvk-borgar

Árnamessuskákmót fékk styrk frá Velferðarráði Reykjavíkurborgar
 
Í gær afhenti Velferðarráð Reykjavíkurborgar 16 styrki úr forvarnasjóði ráðsins. Skákdeild Fjölnis fékk myndarlegan styrk til að halda skákmót á Árnamessu í Stykkishólmi sunnudaginn 14. mars n.k. Styrkurinn skiptir sköpum fyrir að hægt sé að halda Árnamessuskákmót með glæsilegum hætti

06. september 2009
| Fréttir
| ms

Skákdeild Fjönis hreppti ´"Máttarstólpann" hvattningarverðlaun Hverfisráðs Grafarvogs

Á Grafarvogsdeginum 5. september veitti Hverfisráð Grafarvogs skákdeild Fölnis hvatningarverðlaun ráðsins "Máttarstólpann" fyrir árið 2009. Hverfisráð Grafarvogs veitir þessi verðlaun ár hvert fyrir framúrskarandi félgstarf í Grafarvogi.  Er skákdeild Fjölnis vel að þessum verðlaunum komin og fór Ragnar  Sær Ragnarsson nokkrum orðum um árangursríkt barana- og ungingastarf deildarinnar þar sem ..........

Guðrún Valdimarsdóttir framkvæmdastjóri SAMFOKS afhenti Helga Árnasyni formanni skákdeildar Fjölnis máttarstolpann og Ragnari Sær Ragnarsson varaformaður Hverfisráðs Grafarvogs fór með pistil um velgengi deidarinnar


22. maí 2008
| Fréttir skákdeildar
| Vignir Bjarnason

Skákakademía Reykjavíkur stofnuð

Í dag var skrifað undir stofnsamning að Skákakademíu Reykjavíkur að Höfða við hátiðlega athöfn. Auk Reykjavíkurborgar eru helstu styrkaraðilar Landsbankinn, Mjólkursamsalan og Orkuveita Reykjavíkur.

Hlutverk Skákakademíu Reykjavíkur verður að byggja upp skákíþróttina í höfuðborginni með sérstakri áherslu á skóla borgarinnar. Auk þess mun Skákakademían standa árlega að Skákhátíð Reykjavíkur þar sem Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið verður meðal atburða.

Helgi Árnason skólastjóri Rimaskóla mætti með hóp af nemendum Rimaskóla en þeir eru flestir liðsmenn Fjölnis. Hér við hliðina eru nokkrar myndir af atburðinum. Eftir undirritun tók við stutt skákmót barnanna en að því loknu tefldi borgarstjórinn, Ólafur F. Magnússon við Jón Trausta Harðarson og Hrafn Jökulsson, skákfrömuður, við Dag Ragnarsson.

Frá undirritun stofnsamnings Skákakademíu Reykjavíkur

Bragi Þorfinnsson, nýkjörinn forseti Skáksambands Íslands sést hér í hópi vaskra Fjölnismanna.


27. apríl 2008
| Fréttir skákdeildar
| VB/HÁ

Sumarskákmót Fjölnis 2008

Að venju hélt Skákdeild Fjölnis fjjölmennt skákmót á sumardaginn fyrsta. Góð þátttaka var í mótinu og tóku 32 grunnskólanemendur þátt. Verðlaun voru flugferð, pítsur, geisladiskar og bækur.

Hjörvar Steinn Grétarsson sígraði í mótinu með fullt hús stiga. Í öðru sæti var Sigríður Björg Helgadóttir og var jafnframt efst stúlkna á mótinu.


27. apríl 2008
| Fréttir skákdeildar
| VB

Unglingameistaramót Reykjavíkur 2008

Fjölnismaðurinn Dagur Andri Friðgeirsson sigraði á Unglingameistaramóti
Reykjavíkur sem fram fór í Skákhöllinni í Faxafeni laugardaginn 29.
mars.  Átján keppendur voru skráðir til leiks og voru tefldar sjö
umferðir eftir Monrad-kerfi með 15 mínúta umhugsunartíma á skák.
Dagur Andri varð jafn Hallgerði Helgu Þorsteinsdóttur frá Helli í
mótinu en vann síðan einvígi þeirra á milli.
Í þriðja sæti á mótinu varð Hörður Aron Hauksson úr Fjölni. Árangur
Dags Andra er glæsilegur því hann er aðeins á þrettánda ári.
Dagur Andri hefur átt fast sæti í liði Fjölnis á Íslandsmótum
félagsliða og er einn efnilegasti skákmaður landsins um þessar
mundir. Hann var aðeins hársbreidd frá því að verða Norðurlandameistari í
sínum aldursflokki á skólaskákmóti Norðurlanda í febrúar sl.
Skákdeild Fjölnis óskar Degi Andra til hamingju með
Reykjavíkurmeistaratitilinn.

01. mars 2008
| Fréttir skákdeildar
| Vignir Bjarnason

Íslandsmót skákfélaga - seinni hluti

Seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga er haldið í Rimaskóla, Grafarvogi, eins og fyrri hlutinn. Aðstaðan er mjög góð og nú er skákum á efstu borðum varpað upp á vegg í næsta sal. Byrjað var að tefla í gær, 29.2.2009 sem er 5. umferð. Í dag eru 6. umferð (kl.11:00) og 7. og síðasta umferð (kl: 17:00). Hóf og verðlaunaafhending verður í Faxafeni í kvöld, kl. 20:00.

A-sveit Fjölnis er nú sem stendur í 4. sæti og á í mikilli keppni við Hauka um 3. sætið nú í 6. umferð. A-sveit Hellis og A-sveit TR lenda saman í síðustu umferð og virðist sú viðureign ráða úrslitum um hver verður Íslandsmeistari.