Drekaævintýri sumarið 2010

Í sumar mun Taekwondo deildin standa fyrir ævintýranámskeiði fyrir börn á öllum aldri. Námskeiðið er ekki eingöngu sniðið að núverandi iðkendum heldur fyrir alla þá sem hafa gaman af útiveru, góðum félagsskap og ævintýrum. Farið verður í fjallgöngur, hjólreiðatúra, ratleiki, Taekwondo tækni, sjálfsvörn og sund svo eitthvað sé nefnt. Gestakennarar úr öðrum bardagalistum munu einnig koma í heimsókn og í lok námskeiðsins verður svo haldið beltapróf fyrir þá sem forskrá sig í deildina á haustönn.

Tveir hópar
Yngri hópurinn er fyrir 5-8 ára þar sem farið verður í grunntækni í Taekwondo, útileiki, hjólreiðatúra, sund og gönguferðir í náttúrunni í kring með áherslur á lífríki hennar.Eldri hópurinn er ætlaður fyrir 9-12 ára börn og lögð verður áhersla á útiæfingar, lengri göngu- og hjólatúra, gestakennarar verða með kynningar á ýmsum sjálfsvarnarlistum og iðkendur læra slökunartækni sem á sér yfir 2000 ára sögu.

Tímabil og verð
Boðið verður upp á drekaævintýrið tvisvar sinnum yfir sumarið. Námskeiðið stendur yfir í tvær vikur en þó verður hægt að skrá sig aðra vikuna. Fyrra námskeiðið er frá 14. - 25. júní og seinna námskeiðið frá 9. - 20. ágúst. Yngri hópurinn mætir á morgnanna frá kl. 9-12 og eldri hópurinn eftir hádegi frá kl. 13-16.

1 vika = 6.000 kr.
2 vikur = 12.000 kr.

Skráning fer fram á fjolnir@bardagalistir.net.

Auglýsing á pdf (90 kb)