Tennisdeild
19. febrúar 2009
| ms

Aðalfundur Tennisdeildar.

Aðalfundur Tennisdeildar Fjölnis verður haldinn í Tennishölinni í Kópavogi, fimmtudaginn 26. febrúar kl. 18:30.

Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.

Stjórn


01. september 2008

Æfingatafla Tennisdeildar haustið 2008

Æfingatafla Tennisdeildar frá og með 1. september 2008 ( ath. Þjálfarar raða sjálfir í hópa)

Miðvikudagar Borgarskóla (í Grafarvogi)  18.00 - 19.00  Byrjendur börn.

Fimmtudagur í Tennishöllinni (í Kópavogi) 16.30 - 17.30 Framhaldsflokkur, Meistaraflokkur / 17.30 -18.30 Meistaraflokkur.

Laugardagur í Tennishöllinni (í Kópavogi) 10.30 - 11.30 Meistaraflokkur / 11.30-12.30 Framhaldsflokkar undir leiðsögn þjálfara Meistaraflokkur heldur áfram að spila.

Sunnudagar í Tennishöllinni (í Kópavogi) 17.30 - 18.30 Meistaraflokkur og Byrjendur (eldri- og yngrihópar) / 18.30 - 19.30 Meistaraflokkur (eldri )og Framhaldsflokkur

Meistaraflokkur hefur einnig aðgang að Tennishöllinni á mánudögum frá 20.30 - 22.30 til að spila leiki. Þessa leiki þarf að skrá hjá þjálfara. Ungt afreksfólk í deildinni hefur forgang á þessum tímum.


05. ágúst 2008

Úrslit Fjölnis-Þróttarmótið

 


Tvíliðaleikur, þar sem karlar, konur, ungir og gamlir spila allir saman var fjölmennastur og heldu þar hinir góðkunnu Bragi og Guðmundur titlinum frá fyrri Þróttarmótum. Þeir unnu Ástmund og Marclenan 6:2-7:6(7:4). B-flokkinn unnu Þrándur og Ævar.
Sverrir Bartolozzi vann flokk 12 ára og yngri og Jóhann sigraði B-flokk. Ástmundur Kolbeinsson vann unglingaflokk, Steinunn kvennaflokk og Óskari Knudsen var dæmdur sigur í karlaflokki þar sem að hann sigraði Þránd, 6:3-7:5.  
Að lokum ber að þakka keppendum fyrir drengilega og skemmtilega keppni og öllum sem komu að mótinu fyrir þeirra framlag.




23. maí 2008

Tennisnámskeið 2008

Tennisdeildir Fjölnis og Þróttar standa sameiginlega að tennisnámskeiðum fyrir unga sem aldna, byrjendur og lengra komna. Námskeiðin eru miðuð við eftirfarandi hópa:

 

1.     Börn, byrjendur

2.     Lengra komna á öllum aldri, (framhaldsflokkur)

3.     Reynda spilara á öllum aldri, (meistaraflokkur)

 

Námskeiðin fara fram á tennisvöllum Þróttar í Laugardal, nema annað sé tekið fram. Eftirfarandi námskeið eru fyrirhuguð ef næg þátttaka fæst:

 

  • Mánudaga kl. 17-18, börn, byrjendur,
  • Mánudaga kl. 18-19, fullorðnir, byrjendur,
  • Mánudaga kl. 17-18, lengra komnir (á Fjölnisvöllum)
  • Mánudaga kl. 19-21, reyndir spilarar
  • Miðvikudaga kl. 17-18, lengra komnir
  • Miðvikudaga kl. 18-19, reyndir spilarar

Leiðbeinendur á námskeiðunum eru Anna Podolskaia (með meistarapróf í tenniskennslu) og Carola Frank Aðalbjörnsson (doktor í hreyfifræði). Þær hafa langa reynslu af tenniskennslu hér á landi.

 

Námsskeiðin eru í júní, júli og ágúst, hver mánuður kostar 4.000 kr. fyrir þá sem eru einu tíma í viku. Þeir sem eru tvo tíma í viku greiða 6.000 kr. Þeir sem eru þrjá tíma í viku greiða 8.000 kr.

 

Skráning er hjá Carolu í veffangið:

 

cadalbjornsson@actavis.com

 

eða í síma: 8561028

 

Einnig er hægt að fá einkatíma og hóptíma hjá Önnu og Carolu.


06. mars 2008

Aðalfundur Tennisdeildar UMF.Fjölnis

Aðalfundur Tennisdeildar UMF.Fjölnis verður haldinn í Tennishöllinni í Kópavogi fimmtudaginn 13.mars 2008 kl.17.30

Dagskrá fundar:

1. Venjuleg aðalfundarstörf

2. Önnurmál

Óskar Knudsen


15. janúar 2008
| MS

Æfingar hefjast

Á miðvkudaginn 16.janúar hefjast æfingar fyrir byrjendur í íþróttahúsi Borgarskóla. Æfingarnar verða á miðvikudögum og föstudögum frá kl.18.00 - 19.00. Byrjanda flokkur hentar börnum frá 5 ára aldri og upp úr. Það er þó nokkuð algengt að foreldrar taki námskeið með börnum sínum.

Æfingar framhalds- og meistaraflokka eru í Tennishöllinni í Kópavogi á sunnudögum kl. 17.30 og fimmtudögum kl. 16.30