Valdimar Ingi Íslandsmeistari í 800 m hlaupi 4. árið í röð
02. Jul. 2012 08:08
Valdimar Ingi Jónsson Fjölni varð nú um helgina Íslandsmeistari í 800 m hlaupi 14 ára pilta á Meistaramóti Íslands 11-14 ára sem haldið var á Laugardalsvelli. Valdimar hljóp á tímanum 2:16,01 mín og átti í harðri baráttu við Afetureldingarmanninn Arnór Breka sem náði öðru sæti. Er þetta fjórða árið í röð sem Valdimar hampar Íslandsmeistaratitlinum í 800 m hlaupi í sínum aldursflokki.
Góður árangur náðist hjá fleiri keppendum. Meðal þeirra sem komust í verðlaunasæti voru Vilhelmína Þór Óskarsdóttir sem varð þirðja í 800 m hlaupi í flokki 14 ára stúlkna á tímanum 2:38,84 mín og hún varð einnig þriðja í langstökki með stökk upp á 4,83 m. Hlín Heiðarsdóttir varð þriðja í 800 m hlaupi 13 stúlkna á tímanum 2:39,77 mín. Þá varð Viktor Nói Kristinsson þriðji í 80 m grindahlaupi í flokki 13 ára pilta á tímanum 13,79 sek, einnig þriðji í hástökki með stökk upp á 1,54 m og þriðji í langstökki með 4,95 m stökk.
Nánari úrslit er að finna á mótaforriti FRÍ