Afreksbraut Fjölnis og Borgarholtsskóla
ÍÞRÓTTIR FYRIR AFREKSFÓLK
í BORGARHOLTSSKÓLA HAUST 2011
Borgarholtsskóli býður upp á afreksíþróttasvið í knattspyrnu, körfuknattleik, handbolta, golfi, skíðum, íshokkí og listdansi á skautum. Nemendur á afreksíþróttasviði geta stundað nám á hvaða bóknámsbraut skólans sem er (félagsfræði-, mála-, náttúrufræði- og viðskipta og hagfræðibraut).
Afreksíþróttasvið er fyrir nemendur sem vilja stunda sína íþrótt með álagi afreksmanna samhliða bóknámi. Fjórar námseiningar á önn.
Kröfur til nemenda :
- Að hafa stundað íþrótt sína í nokkur ár og vera virkur iðkandi í íþróttafélagi.
- Að hafa staðist grunnskólapróf
- Vera vímuefnalaus íþróttamaður/íþróttakona.
- Geta tileinkað sér hugarfar og lífsstíl afreksíþrótta.
- Standast eðlilega námsframvindu og ljúka u.þ.b. 15-19 einingum á önn.
- Gerð er krafa að nemendur hafi a.m.k. 95% skólasókn í öllum námsgreinum.
Efnisgjald fyrir afreksíþróttasvið verður innheimt sérstaklega til viðbótar við önnur skólagjöld.
Frábær kennsluaðstaða:
- Egilshöll – íþróttahús Fjölnis
- Korpúlfsstaðir - Básar
Umsókn:
Nemendur sækja rafrænt um skólavist á bóknámsbraut .
Umsóknareyðublað fyrir AFREKSÍÞRÓTTASVIÐ er á www.bhs.is (undir “bóknám til stúdentsprófs”) eða á skrifstofu skólans.
Allar nánari upplýsingar veitir
Bjarni Jóhannsson
Verkefnisstjóri afreksíþrótta BHS
Sími 896 8566