Fjölnir 2014
Af hverju áætlunin Fjölnir 2014?
Grunnurinn að þessu verkefni var unninn í tengslum við námskeiðið Afreksþjálfun á 3ja ári við íþróttafræði Háskólans í Reykjavík vorið 2009. Þá ríkti mikil óvissa og stefnuleysi sem leikmenn í elstu flokkum handboltadeild Fjölnis bjuggu við.
Undanfarin ár hafa leikmenn sem komast á framhaldsskólaaldur í deildinni ekki haft að neinu að stefna eða keppa. Nú þegar stofnaður hefur verið meistaraflokkur og hann starfræktur á fjórða ár horfir dæmið öðruvísi við. Leikmenn sjá þar tilgang með því að æfa íþróttina í viðkomandi félagi til lengri tíma með þátttöku í meistaraflokk fyrir augum. Auk þess hafa þeir fyrirmyndirnar til að læra af fram að þeim tíma. Þátttaka þeirra leikmanna sem nú æfa, stjórnarinnar og öflugt meistaraflokksstarf er því forsenda þeirrar áætlunar sem hér verður kynnt.
Með Fjölniskveðju
Sveinn Þorgeirsson, höfundur verkefnisins “Fjölnir 2014”.
Staðan í dag
Í dag æfa um 30 drengir á aldrinum 15-18 ára undir merkjum verkefnisins í 3. og 4. flokk félagsins. Taka þeir þátt í Íslandsmóti og bikarkeppnum á vegum HSÍ. Fjórði flokkur í 2. deild með um 14 leikmenn og þriðji flokkur í 1. deild með um 14 leikmenn. Á næstu tveimur árum munu þessir leikmenn smátt og smátt nálgast og síðar verða hluti af meistaraflokk félagsins.
Unglingsárin er mikilvægur aldur því þá öðæast drengirnir þroska og verða færir um að gefa til baka í innra starf deildarinnar eins og dómgæslu á mótum, þjálfun og önnur tilfallandi störf. Miðlað þeirri kunnáttu sem þeir hafa til iðkenda sem aðstoðarþjálfarar og síðar aðalþjálfarar yngri flokka. Hagur deildarinnar og framtíðarvöxtur hennar og er því fólginn í því að halda þessum leikmönnum innan raða félagsins. Hvort sem þeir verða afreksmenn í deildinni eða virkir félagsmenn. Áætlunin gæti því til lengri tíma þjónað þeim tilgangi að tryggja að upp komi árgangur sem ryður brautina fyrir framtíðar afreksmenn deildarinnar. Hagsmunaaðilar verkefnisins eru UMF. Fjölnir, handknattleiksdeildin, foreldrar leikmanna, og í stærra samhengi HSÍ.