Leiðir
Sú leið var farin að gerður hefur verið samningur milli tveggja hagsmunaaðila. Iðkenda og foreldra/forráðamanna annars vegar og deildarinnar hins vegar. Áætlunin og samningurinn er til ársins 2014 þó samningarnir sem skrifað var undir nái aðeins til maí 2013.
Þá er komið að endurmati og ef verkefnið er í eðlilegum horfum verður það framlengt um eitt ár (20.01.12-31.05.14). Á því tímabili samþykkja leikmenn sig til að standa við tilgreindar skuldbindingar gegn þjónustu félagsins við þá á sama tímabili. Samningurinn er hugsaður með hag beggja að leiðarljósi.