Stefna

1) Að auka fagmennsku við æfingar. Lögð var áhersla á það að fá reynslumikla þjálfara til starfa og hefur deildin í dag sterkt þjálfarateymi. Samvinna þeirra er öflug og hafa þjálfarar verið duglegir að sækja þau námskeið sem hafa verið í boði hjá ÍSÍ og HSÍ, auk þess sem deildin  hefur boðið upp á námskeið (íþróttasálfræði og markmannsþjálfun). Þá hafa reyndir handboltamenn komið í heimsókn (Róbert, Snorri Steinn, Júlíus Jónasson, Björgvin Páll, Guðríður og Hafdís). Uppskeran hefur verið eins og til var sáð, krakkarnir í yngri flokkunum hafa unnið medalíur og bikara og frábær bæting í elstu flokkunum.

2) Að auka iðkendafjölda. Stefnt var að því að tvöfalda iðkendafjölda á tveimur árum. Allt stefnir í að það takist. Sérlega var hlúð að elstu hópunum sl. starfsár og hefur það skilað sér í fjölgun iðkenda í elstu hópunum okkar og verður Fjölnir nú með 3. fl. karla og kvenna sem ekki voru starfandi í fyrra. Eru þar krakkar sem hafa hætt í handbolta eða starfað með öðrum félögum á undanförnum árum. Þá liggur fyrir ósk HSÍ um að meistaraflokkur karla spili í 1. deild 2008-2009 og líklegt er að 2. deildarlið Fjölnis kvennamegin muni spila í 1. deild 2009-2010. Á næsta ári verður lögð aukin vigt á að fjölga í yngri flokkunum. Áfram hefur verið unnið markvisst að því að auka upplýsingaflæði og fréttir frá deildinni m.a. með útgáfu Handboltablaðs Fjölnis sem nú er að koma út þriðja árið í röð, vefsíða deildarinnar hefur eflst og fréttir hafa verið sendar með myndum af krökkunum í Grafarvogsblaðið. Þá hafa þjálfarar mætt í skólana til að kynna handboltann. Loks er rétt að nefna skólamót Fjölnis í handbolta sem haldið verður í þriðja sinn í byrjun september.

3) Að fá fleiri stuðningsaðila að deildinni. Deildin fékk nokkra sterka stuðningsaðila að deildinni. Má þar nefna SPRON, Orkuveitu Reykjavíkur, Heilsuakademíuna, Bakarameistarann, Vífilfell, Loftlínur, AB-varahluti og Aflgröfur. Auk þess fékk deildin styrk frá aðalstyrktaraðilum félagsins. Mikil og góð vinna var lögð í innheimtu æfingagjalda sem skiluðu sér vel. Loks hefur Handboltablað Fjölnis skilað ágætum tekjum. Fjögurra manna nefnd hefur unnið að skiltasölu í salinn.

4) Að bæta enn frekar foreldrastarfið. Foreldrastarfið hefur eflst mikið að undanförnu og hefur tengiliður stjórnar HDF mætt á foreldrafundi flokka.

5) Að allir iðkendur fái að njóta sín. Lögð hefur verið áhersla á að iðkendur sýni hvert öðru virðingu í leik og starfi. Þjálfarar leggi áherslu á að ná upp góðu hópefli innan flokka og passi upp á að allir séu með þar. Þetta hefur m.a. skilað sér í ótrúlegum framförum nokkurra einstaklinga sem ekki hafa látið mikið á sér bera til þessa, auk þess sem hópíþrótt sem þessi byggir á sterkum félagsskap.

6) Að bæta aðstöðu deildarinnar. Stjórn deildarinnar hefur lagt sig fram um að bæta alla aðstöðu fyrir þjálfara og iðkendur. Keyptir hafa verið búningar, boltar, keilur og fleira sem nýtist við æfingar. Þó vantar upp á aðstöðuna til að geyma munina svo þeir endist lengur. Rætt hefur verið við framkvæmdastjóra félagsins um að setja upp skilveggi í kjallaraherbergin tvö þannig að hver deild hefði smá geymsluaðstöðu fyrir sig. Þá hefur verið fundað með framkvæmdastjórum Fjölnis og með fulltrúum ÍBR um að nýta íþróttahúsin í hverfinu betur fyrir yngri krakka í handbolta og körfubolta svo aukið rými fáist fyrir eldri iðkendur í Dalhúsum og Rimaskóla. Gott væri ef Fjölnir í samvinnu við Handknattleikssambandið og Körfuknattleikssambandið gæti nýtt skriðþungann sem er til staðar nú og ýtt á að stórt íþróttahús myndi líta dagsins ljós í hverfinu. Það rímar einnig vel við uppbyggingu afreksíþróttasviðs í Borgarholtsskóla. 9