VERKÍS FIRMAKEPPNIN Í SKÁK
Skákdeild Fjölnis með stuðningi Verkfræðistofunnar VERKÍS stendur fyrir nýju og glæsilegu stórmóti í skák, firmakeppni sem fram fer í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 14. og 15. mars nk. Teflt verður báða dagana frá kl. 16:15 – 19:00.
Mjög vegleg verðlaun verða í boði fyrir þrjú efstu lið mótsins, þ.e. fjóra liðsmenn og liðsstjóra. Flugmiðar og GSM sími eru dæmi um hversu glæsileg verðlaun verða í boði fyrir bestan árangur sveita og einstaklings á mótinu. Þá verður dreginn út aukavinningur sem allir þátttakendur eiga möguleika á að vinna.
Hvert fyrirtæki eða stofnun sendir fjögurra manna skáksveit en einnig er leyfilegt að hafa varamenn. Liðsmenn skulu tilheyra starfsmannalista viðkomandi fyrirtækis eða stofnunar árið 2012.
Skákdeild Fjölnis, sigursælasta skákfélag landsins í keppni barna og unglinga, stendur að mótinu en verkfræðistofan Verkís er aðalstyrktaraðili mótsins á 80 ára afmælisári fyrirtækisins. Héðinn Steingrímsson, Íslandsmeistari í skák, og Hrafn Jökulsson skákfrömuður koma að skipulagningu og umsjón mótsins. Mótið er fjáröflunarmót skákdeildar Fjölnis og er m.a. ætlunin að styrkja barna-og unglingastarf félagsins og fjárfesta í skákvélbúnaði fyrir Héðinn Steingrímsson, stigahæsta virka stórmeistara Íslands í skák .
Stefnt er að því að gera mótið að árlegum glæsilegum viðburði og endurvekja þar með þá skemmtilegu stofnanakeppni sem var við lýði fram að síðustu aldamótum. Skákdeild Fjölnis mun senda út boðsbréf til helstu fyrirtækja landsins. Skákmenn Íslands ættu nú þegar að sýna frumkvæði og kanna þátttökumöguleika á sínum vinnustað eða gerast liðstjórar/þjálfarar hjá FIRMA sem þeir hafa tengsl eða aðgang að. 
Þátttökugjald hvers fyrirtækis/stofnunar er 50.000 kr. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 20. febrúar 2012 á netfang mótsins firmakeppnin@gmail.com. Frekari upplýsingar um mótið verða birtar jafnharðan og tækifæri gefst til.