Kristinn með silfur og 3 brons á NÆM

image

09. Jul. 2012 12:07



Kristinn lauk keppni á NMÆ (Norðurlandameistaramóti Æskunnar) í morgun. Kristinn keppti í 200m baksundi og 200m fjórsundi og varð hann í 3. sæti í báðum greinum og var að synda alveg við sína bestu tíma. Flott mót hjá Kristni en hann kemur heim með 3 brons og 1 silfur. Kristinn skellti sér með þjálfara, farastjóra og öðrum keppendum í Tívolí í kvöld til að fagna árangrinum. Áætluð heimkoma er á mánudagskvöld en þá hefst smá sumarfrí.