Ingvar Íslandsmeistari unglinga í 1500m og 3000 m hlaupum
14. Aug. 2012 09:14
Ingvar Hjartarson Fjölni varð Íslandsmeistari pilta 18-19 ára á Meistaramóti Íslands sem fram fór á Höfn í Hornafirði síðustu helgi í 1500 og 3000 m hlaupum með góðri persónulegri bætingu. Ingvar er á leið á Norðurlandameistaramót 19 ára og yngri ásamt 15 íslenskum ungmennum sem fram fer í Vaxjö í Svíþjóð um næstu helgi. Þar mun hann keppa í 1500 m og 5000 m hlaupum.