Fjölnislagið
Fjölnislagið
Hér er hægt að nálgast Fjölnislagið, hægt að hægri smella og gera "Save as" og setja það inná tölvuna þína. Lagið er rúmlega 5. mb.
Það er Jón Jósep (Jónsi í Svörtum fötum) sem syngur lagið að sinni alkunnu snilld en það var Þorvaldur Bjarni sem samdi lagið og gaf alla sína vinnu við gerð lagsins.
Fjölnislagið
Áfram, áfram Fjölnir,
við stöndum saman
og styðjum okkar menn
Við syngjum áfram, áfram Fjölnir, við gefum allt í leikinn, gul og hreykin, gefumst aldrei upp.
Inn við sundin, undir sólu, eyrar hugurinn, þar í góðu, góðu skjóli, glóir vogurinn
Íbúarnir allir saman eiga félagslið, einum rómi útá velli eitt er þeirra lið
Við getum unnið og gerum það enn og gleðjumst öll og syngjum í senn, sigurinn er okkar Fjölnismenn.
Við syngjum áfram, áfram Fjölnir, við stöndum saman og styðjum okkar menn
Við syngjum áfram, áfram Fjölnir, við gefum allt í leikinn, gul og hreykin, gefumst aldrei upp.
ÁFRAM FJÖLNIR
Grafarvoginn gyllir sólin, gott er mannlífið, öll við finnum út á velli að eitt er takmarkið
Stöndum þétt og þróttmikil um þetta félagslið, þor og dugur, þrek og snerpa, þetta erum við