Sambíómótið
Sambíómótið er einn af hápunktum hvers keppnistímabils hjá Fjölni en það er mót sem við höldum í nóvember ár hvert, fyrir yngstu körfubolta krakkana þ.e.tíu ára og yngri stráka og ellefu ára og yngri stúlkur.
Þetta er fyrir löngu orðið víðfrægt mót enda leggjum við Fjölnismenn mikið á okkur með það að leiðarljósi að helst allir fari glaðir heim eftir mótið.
Nánast allir í körfuknattleiks deildinni koma að mótinu, þeir yngstu keppa en hinir eldri eru allir að hjálpa til.
Um mótið.
Þátttakendur mæta eldsnemma á laugardagsmorgni til að fá afhent armbönd. Í framhaldinu er strax byrjað að keppa, síðan er bíóferð í Sambíóin Egilshöll. Síðan er aftur farið að spila alveg fram að kvöldmat sem klikkar aldrei.
Rétt fyrir kl. átta er farið í blysför að íþróttamiðstöðinni í Dalhúsum þar sem kvöldvakan er haldin með allskynns leikjum og er t.d. "rúlluboltinn" sem margir þekkja, oft alveg rosalega spennandi. Þá er alltaf troðslusýning og ýmislegt fleira skemmtilegt á dagskránni.
Eftir kvöldvöku fara allir aftur í Rimaskóla þar sem gist er og fá allir dýrindis skúffuköku áður en farið er að hvíla sig fyrir átök morgundagsins.
Á sunnudeginum er spilað fram yfir hádegi en upp úr hádeginu er verðlaunaafhending með skrúðgöngu þar sem liðin mæta oftast með félagsfánana sína.
Allir fá verðlaunapening og endað er á frábærri pizzaveislu.
Okkur finnst mikilvægt að ekki eru talin stigin í leikjunum. Því geta leikmenn einbeitt sér að því að reyna að gera það rétt sem þjálfarinn hefur kennt þeim á æfingum. Eins og að skjóta rétt þó boltinn fari kannski ekki alltaf ofan í körfuna. Líka þarf að gefa góðar sendingar og ná góðu samspili eða hvað það nú er sem þjálfarinn leggur áherslu á.
Enginn þarf að vera leiður yfir því að hafa tapað leiknum, allir bara vinna.
Það er að mörgu að hyggja fyrir Sambíómótið. Það þarf að fá um 50 dómara til að dæma leikina og 10-15 kokkar sjá um matinn yfir helgina. það þarf 10- 15 manns í gæslu og um 20 öflugir sjálfboðaliðar skúra skólann að móti loknu. Auk þess er margt margt annað sem þarf að gera.
Þátttakendum hefur fjölgað jafnt og þétt, ár frá ári, og síðasta haust voru þátttakendur alls um 400. Fjölnir treystir sér varla til að taka á móti mikið fleiri gestum fyrr en við fáum nýtt íþróttahús í Grafarvoginn, en það stendur til bóta.
Við í Fjölni hlökkum mikið til næsta móts því það er alltaf ótrúlega gaman að skemmta sér með góðum gestum og markmið okkar er að allir fari ánægðir heim að afloknu skemmtilegu móti.
Körfukveðja,
Stjórn Sambíómóts Fjölnis