Ágúst Jensson nýr þjálfari hjá meistaraflokki kvenna í körfubolta
16. Jul. 2012 01:49
Ágúst Jensson hefur tekið við þjálfun í meistaraflokki kvenna. Ágúst er Fjölnismönnum að góðu kunnur, hann hefur þjálfað yngri flokka í mörg ár og er það okkur mikil ánægja að hann sé tekinn við þjálfun hjá kvennaliðinu og án efa spennandi tími framundan hjá konunum. Allar okkur stelpur spila í vetur ásamt því að það hefur fjölgað í hópnum og verður b lið sem keppir í 1. deildinni.