STUÐMENN !
Stuðningsmannaklúbbur mfl. körfuknattleiksdeildar Fjölnis var settur á laggirnar árið 2004. Fékk hann strax nafnið Stuðmenn. Það var okkar fyrsta ár í deild bestu liða landsins og þegar sem best gekk voru meðlimir orðnir um 30 talsins.
Stuðningsmannaklúbburinn er samheldinn hópur sem hittist stöku sinnum og ræðir málin. Fyrir leiki er gjarnan hist og málin rædd og jafnvel tækifæri til að ná á þjálfarann og komast að því hvernig hann ætli að leggja upp leikinn. Eflaust fengi hann þá einhver góð ráð að launum því nóg er af þeim í hópnum.
Það kostar aðeins kr. 1.000,- á mánuði að gerast Stuðmaður (kr. 500,- fyrir 65 ára og eldri). Best er að láta draga þetta af kredit kortinu sínu mánaðarlega.
Með því að gerast Stuðmaður, ertu
a. Styrktaraðili meistaraflokka Fjölnis
b. Hluti af skemmtilegum hópi fólks sem hefur áhuga körfubolta og finnst gaman að ræða málin og hafa skoðanir
c. Með aðgang að kaffi og meðlæti í hálfleik á heimaleikjum
d. gulur í gegn og færð bol merktan Fjölni sem þú mætir í á alla leiki Fjölnis
Reglur klúbbsins:
1. gr.
Félagsskapurinn gengur undir nafninu "Stuðmenn".
2. gr.
Stuðmenn lofa að reyna eftir fremsta megni að hvetja lið sitt með jákvæðum hætti en skipta sér lítt af dómgæslu og öðru slíku, að minsta kosti ekkert skítkast eða þessháttar.
3. gr.
Stuðmaður mætir í gulum bol á alla leiki.
4. gr.
Stuðmaður greiðir að lágmarki kr. 12.000 á ári í stuðningsframlag til körfuknattleiksdeildarinnar.
(Best er ef hægt er að draga af visakorti mánaðarlega)
5. gr.
Forsvarsmaður Stuðmanna er Steinar Davíðsson.
Gerast má félagi í stuðningsmannaklúbbi Fjölnis með því að senda forsvarsmanni klúbbsins eftirfarandi upplýsingar á tölvupósti: (beggaj@simnet.is)
Nafn:
Heimilisfang:
Kennitala:
Heimasími:
Gsm:
Einnig er hægt að fylla út eyðublað við innganginn á öllum heimalekjum Fjölnis.
Viðkomandi fær tölvupóst til baka með nánari upplýsingum um greiðslu og svo félagsskírteini í gamla góða póstinum.