Getraunir

Getraunastarf Fjölnis er starfrækt á Laugardagsmorgnum milli kl. 10:00-13:00 í Sportbitanum í Egilshöll.  Alltaf heitt á könnunni og ýmist hægt að taka þátt í getraunastarfinu og skrá sig í hópleik Fjölnis en það er þó ekkert skilyrði.

 

Reglur í hópleik

Leikreglur í getraunaleik Fjölnis 

  1. Hópleikurinn er öllum opinn sem vilja taka þátt í getraunastarfi Fjölnis. Tveir einstaklingar mynda hvern hóp og gefa honum nafn til aðgreiningar frá öðrum hópum. Þátttökugjald er kr. 4.000.- fyrir hópinn og greiðist við skráningu með peningum. 
  1. Hópunum er síðan skipt í riðla þannig að aldrei séu færri en 8 hópar í hverjum riðli og aldrei fleiri en 12. 
  1. Hópurinn sendir inn tvo seðla á þar til gerð blöð sem Fjölnir-getraunir láta í té. Þessir tveir seðlar skulu hvor um sig innihalda 7 leiki með einu merki og 6 leiki með tvítryggingu. (2x640 kr. seðlar)
  1. Raðirnar skulu vera komnar til umsjónarmanns getraunastarfs hjá Fjölnis fyrir lokun sölukerfis íslenskra getrauna. Tekið er á móti röðunum á laugardögum í Egilshöllinni frá kl. 09.00 til loka sölukerfis íslenskra getrauna. Einnig er hægt að senda raðirnar á netfangið 1x2@fjolnir.is eða hringja á laugardögum í síma 692-4422 (Kristó) eða 661-5818 (Fannsi). 
  1. Riðlakeppnin stendur yfir í 10 vikur. Að lokinni riðlakeppninni fara tveir efstu hóparnir úr hverjum riðli í tvo úrvalsdeildarriðla þar sem keppt er í fjórar vikur. Efstu liðin úr hvorum riðli keppa síðan til úrslita um sæmdarheitið Tippmeistari Fjölnis. Þau lið sem eru efst í sínum riðli taka með sér tvö stig í úrslitin. Þau lið sem ekki komast í úrvalsdeildarriðlana verður síðan skipt í riðla og keppt í fjórar vikur um “??????????”. 
  1. Raðirnar sem hóparnir senda inn fara ekki sjálfkrafa í sölukerfi íslenskra getrauna, heldur þarf hver hópur að senda þær þangað sérstaklega ef þess er óskað. 
  1. Gleymi hópur að senda inn raðir eina vikuna þá gildir lægsta skor vikunnar í þeim riðli sem viðkomandi hópur er í. 
  1. Þegar spilað er í úrslitum eða lið eru jöfn í riðlakeppninni þá kemst það lið áfram sem hefur fleirri útisigra rétta. Sé enn jafnt þegar útisigrar eru taldir þá gilda jafnteflisleikir. Sé enn jafnt þegar þeir leikir eru skoðaðir þá er varpað hlutkesti.