AMÍ Æfingabúðir

DAGUR 3

  

Alli voru vaktir klukkan 6:45 í morgun og látnir ganga/hlaupa hring um svæðið fyrir morgunmatinn. Lovísa á afmæli í dag og var tekið á móti henni með söng og afmælis möffinsi með kertum þegar hún mætti í morgunmatinn. Æfinginn hófst síðann klukka 7:45.

  

  

  

Eftir hressandi, en frekar erfiða æfingu var haldið út á hreystibrautina. Þar var hópurinn paraður upp og tekið hraustlega a þvi.  Erfitt en gaman. Smávegis hrufl og skramur á nokkrum en annars allir hressir. Allir biða spenntir eftir hadegisverðinum, en i dag er soðin ysa....

  

  

  

  

Eftir sundæfingu dagsins var erfitt þrek og voru flestir ansi þreyttir og voru því fegnir að fá að leggja sig fyrir hádegismatinn. Eftir að allir voru búnir að borda vel af fiskinum í hádeginu var ákveðið að splæsa ís á liðið í tilefni þess að Lovísa og Katrín áttu afmæli. Mikil ánægja var með þessa ákvörðun fararstjóranna. Við Gúa erum sammála að hópurinn sé búinn að vera frábær og allir hafa verið félaginu til fyrirmyndar.


Þið eigið flotta krakka!!!

Kveðja
Kjartan og Gúa


DAGUR 2

 

 

Hér eru allir búnir að vera gríðarlega duglegir, æfingin í morgun byrjaði 07:45 til 10:00 og þá var þrekæfing til 11:00. Krakkarnir voru frekar þreyttir og var því slakað á fram eftir degi. Eftir hvíldina fengu síðan allir grillaðar samlokur áður en Vadim sýndi myndbönd um tækni og hvattningu áður en haldið var á seinni æfinguna en Vadim var búinn að lofa erfiðari æfingu. Krakkarnir eru búinn að vera dugleg að æfa og dugleg að borða en sumir borða samt meira en aðrir.

Allt gengur vel og allir gera sitt besta
   Fararstjórar


 

DAGUR 1

    

Æfingabúðir sunddeildar Fjölnis hófust í dag, þetta var frekar rólegur dagur ein æfing og síðan Afslöppun. Í matar og kaffitímanum var tekið vel á því til að byggja sig upp fyrir næstu dAga. Sumir fóru og prufuðu Hreystibrautina á meðan aðrir slöppuðu af yfir videoi. Allt gengur vel og allir sprækir og verða allir komnir í ró klukkan 22:00.

 

Kjartan og Gúa