Búnaður sem þarf að hafa með á mót:
Sundmenn eiga ávallt að mæta til keppnisstaðar í Fjölnisgalla
Innisundmót:
Tvenn eða þrenn handklæði, sundfatnaðinn, þ.e. sundgleraugu, sundhettu, sundbol eða skýlu, gott að hafa fleiri en eitt sett til að geta farið í þurrt eftir upphitun. Fatnaður á bakka er auk sundfata: Fjölnisgallinn eða stuttbuxur, fjölnisbolur, sokkar og skór.
Nesti sem má hafa með sér á sundmót:
Keppendur mega hafa með sér eftirfarandi mat á sundmót: ávexti, grænmeti og korný stykki. Ekki má hafa kex eða önnur sætindi meðferðis og orkudrykkir eru ekki leyfðir.
Gistimót úti:
Dýna, svefnpoki eða sæng, koddi og sængurföt. Ef sundmaður er með vindsæng er nauðsynlegt að koma með aukalak til að setja undir vindsængina. Tannbursti, tannkrem, tvenn eða þrenn handklæði, sundfatnaðinn, þ.e. sundgleraugu, sundhettu, sundbol eða skýlu, gott að hafa fleiri en eitt sett til að geta farið í þurrt eftir upphitun. Hlý útiföt á sundlaugarbakkann, Flíspeysu, húfu, vettlinga, úlpu og kuldabuxur eða kuldagalla, ullasokka og góða skó. Ipod með heyrnartólum, bækur og spil
Gistimót inni:
Dýna, svefnpoki, eða sæng, koddi og sængurföt. Ef sundmaður er með vindsæng er nauðsynlegt að koma með aukalak til að setja undir vindsængina. Tannbursti, tannkrem, tvenn eða þrenn handklæði, sundfatnaðinn, þ.e. sundgleraugu, sundhettu, sundbol eða skýlu , gott að hafa fleiri en eitt sett til að geta farið í þurrt eftir upphitun.. Fatnaður á bakka er auk sundfata: stuttbuxur, fjölnisbolur, sokkar og skór. Ipod með heyrnartólum, bækur og spil
Svo á að sjálfsögðu að taka með góða skapið og gleðina