Barnamót 2011

Barnamót Sunddeildar Fjölnis, Sunddeildar KR og Ármanns var haldið í innilaug Grafarvogslaugarinnar föstudaginn 28. október. Mótið var ætlað allra yngstu iðkendum deildanna bæði til að gefa þeim kost á því að synda á sundmóti og líka fá stærri félagahóp að leika með í lokin. Allir stóðu sig með mikilli prýði og ljóst er að þar voru að ferðinni framtíðarsundmenn hjá deildinni.