• Fréttir
rssFréttir af deildinni
image 07. May. 2012 03:25

Fundargerð aðalfundar Fjölnis 2. maí 2012

Aðalfundargerð

Nánar
  • image

    Aðalfundur Ungmennafélagsins Fjölnis verður haldinn í hátíðarsal félagsins í Íþróttamiðstöðinni Dalhúsum miðvikudaginn 2. maí og hefst fundurinn kl. 20:00.

  • image

    Síðasti keyrsludagur frístundavagnsins núna á vorönn var mánudaginn 30. apríl. Frístundavagninn hefur mælst vel fyrir á sínu fyrsta starfs ári og er á áætlun að keyra þetta verkefni áfram í samvinnu við Reykjavíkurborg næsta vetur.

  • image

    Það verður mikið um að vera hjá okkur í Fjölni í sumar auk hefðbundinna æfinga hjá deildum félagsins bjóða margar deildir upp á sumarnámskeið. það er gaman hversu fjölbreytt námskeiðin verða og ættu allir krakkar í Grafarvogi að geta fundið sér áhugavert námskeið. Opnað verður fyrir skráningar í iðkendaskráningakerfinu hér á heimasíðunni 1. maí. Námskeið sem verða í boði í sumar eru...

  • image

    Næstkomandi fimmtudag verður sumardagurinn fyrsti haldinn hátíðlegur í Grafarvogi með dagskrá fyrir unga sem aldna. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá sem hefst með skrúðgöngu frá Spönginni kl. 11:30 gengið verður að Rimaskóla en þar verðu mikið um að vera til klukkan 14:00. Fjölnir verður m.a með kynningu á sumarstarfi félagsins.

  • image

    Öll íþróttahús sem félagið æfir í verða lokuð frá 5. apríl, Skírdag og opna aftur 10. apríl, þriðjudaginn eftir páska. Gleðilega páska starfsfólk Fjölnis.

  • image

    Frístundavagninn fer í páskafrí frá og með mánudeginum 2. apríl til miðvukudagsins 11. apríl. Gleðilega páska, starfsfólk frístundavagnsins :-)

  • image

    Laugardaginn 31. mars og sunnudaginn 1. apríl munu Sambíóin í Egilshöll vera með Fjölnis bíódaga til styrktar félaginu. Miðar eru seldir á skrifstofu Fjölnis í Egislhöll alla virkadaga frá kl. 9:00 – 16:00 og á fimmtudaginn 29. mars frá kl. 18.00 - 20.00 í Sportbitanum Egilshöll. Það fer hver að vera síðastur, miðasölu líkur kl. 16:00 á morgun. Lítill popp fylgir frítt með hverjum miða, ath afhendist í bíó-sjoppunni.

  • image

    Laugardaginn 31.mars og sunnudaginn 1. apríl mun Fjölnir í samstarfi við Sambíóin Egilshöll halda bíó daga til styrktar félaginu. Í boð verða fjórar skemmtilegar bíómyndir, Stígvélaði kötturinn (Puss in boots), Muppets, Fríða og dýrið og Journey 2, og verða þær sýndar tvisvar hvorn dag kl. 13.00 og 15.10. Þetta er tilvalið tækifæri fyrir flokka, fjölskyldur, vini..... að skella sér saman í bíó í góðra vina hópi. Miðasala er hafinn á skrifstofu Fjölnis en miðarnir verða eingöngu seldir þar og er miðaverð 600 kr. en 500 kr. á miðann ef 10+ miðar eru keyptir. Nánari upplýsingar hjá starfsmönnum skrifstofu í síma 578-2700.

  • image

    Í dag 15. mars hefjast treyju og skódagar í Jóa útherja Ármúla 36, standa þessir dagar yfir í þjádaga. Allar treyjur erlendra félagsliða og allir skór á 20% afslætti.