Kæru foreldrar, forráðamenn og iðkendur,

Upplýsingar varðandi notkun á XPS appinu.

Með XPS appinu er með einföldum hætti hægt að fá yfirsýn yfir æfingar, mætingar og margt fleira. Þjálfari getur sent út tilkynningar og átt í samskiptum við iðkendur og forráðamenn.

Við mælum með fyrir alla sem eru með rafræn skilríki að nota þau við innskráningu (sjá mynd).

HÉR má nálgast kennsluefni fyrir iðkendur og forráðamenn.

Aðeins þeir sem hafa gengið frá skráningu í félagið fá aðgang að appinu og því mikilvægt að ganga frá því á skráningarsíðunni okkar https://xpsclubs.is/fjolnir/registration.

Ef þú hefur ekki fengið aðgang að appinu endilega sendu línu á skrifstofa@fjolnir.is.